DAGSKRÁ
Við tökum laugardaginn snemma með gönguferð, sundferð eða
morgunskokki fyrir þá sem það velja. Í
framhaldinu hefst áhugaverð dagskrá sem stendur fram á miðjan dag. Hátíðardagskrá hefst síðan kl. 19:00 þar sem
engu verður til sparað. Veislustjóri verður
Rótarýfélaginn Örn Árnason sem mun ásamt hæfileikaríku heimafólki annast
stórskemmtilega dagskrá. Kvöldinu lýkur
síðan með dansleik í skagfirskri sveiflu.
Á sunnudeginum verður ýmislegt í boði fyrir þau sem ekki
eru á hraðferð. Golfklúbbur Skagafjarðar stendur fyrir golfmóti þar sem
Rótarýfélagar munu hafa forgang.
Drangeyjarferðir verða með siglingu í Drangey, hægt verðu að upplifa
sturlungaöld í sýndarveruleika hjá 1238, fara á Hóla eða heimsækja byggðasafnið
á Glaumbæ. Svo má ekki gleyma því að
heimsækja einstaka sundlaug á Hofsósi.
Þetta og margt fleira verður í boði á sunnudeginum.
18. ÁGÚST - FÖSTUDAGUR
18:00 Móttaka í boði Rkl. Sauðarkróks
Tónlist, fordrykkur & skagfirskir ostar í boði
19:00 Setning umdæmisþings: Ómar Bragi Stefánsson, umdæmisstjóri
Kynning gesta: Lena J. Mjerhaug, Simo Hautala
Fundur í Rkl. Sauðárkróks
Kvöldverður, Rafpóstur og tónlistaratriði
21:00-23:00 Barinn opinn og létt tónlist.
19. ÁGÚST - LAUGARDAGUR
08:30 Við mælum með því að byrja daginn vel:
Sundlaug Sauðárkróks: Morgunsund
Frá Íþróttahúsi: Morgunskokk
Frá íþróttahúsi: Morgunganga um Skógarhlíð
09:15 Íþróttahús: Afhending þinggagna
10:00 Ávarp: Ómar Bragi Stefánsson, umdæmisstjóri
Skipan fundarstjóra
Skipan ritara
Látinna félaga minnst
10:30 Rótarýsjóðurinn, hlutverk hans og verkefni
10:45 „Aðalfundur“
11:30 Kynning á Shelter Box
12:00 Hádegismatur
13:00 Paul Harris heiðranir
13:15 Styrkir til verkefna
13:25 Félagaþróun
14:55 Boðað til umdæmisþings 2024: Jón Karl Ólafsson
15:00-16:00 Heimsóknir í fyrirtæki
19:00 Fordrykkur
20:00 Hátíðardagskrá:
Kvöldverður, ávörp og tónlist.
Veislustjóri: Örn Árnason
22:00-24:00 Dansleikur með Danssveit Dósa
20. ÁGÚST – SUNNUDAGUR
Og svo er hægt að njóta Sauðárkróks og Skagafjarðar og skoða eitt og annað:
- Golfmót á Hlíðarendavelli, Skráning á Golfbox
-
Drangeyjarferð,
-
River Rafting,
-
The Battle of Iceland,
-
Glaumbær,
-
Hólar,